Frá viðbragðsstjórn og farsóttanefnd Landspítala:
Landspítali er á hættustigi vegna faraldurs COViD-19. Viðbragðsáætlun Landspítala vegna farsótta hefur því verið virkjuð og funda viðbragðsstjórn og farsóttanefnd daglega. Allar ákvarðanir vegna sóttvarna og takmarkana þeim tengdar eru teknar á þeim miðlæga vettvangi og eru starfsmenn og stjórnendur hvattir til að kynna sér nýjustu ákvarðanir á degi hverjum á innri upplýsingavefjum spítalans.
1. Aðstaða fyrir starfsmenn sem ekki geta dvalið heima
Stjórnendur eru beðnir að kynna sér gæðaskjal á innri vef um aðstöðu fyrir starfsmenn sem ekki geta dvalið heima hjá sér vegna COVID-19.
2. Á Landspítala eru nú:
23 sjúklingar inniliggjandi vegna COVID19 – 71 alls frá upphafi III bylgju faraldursins.
- Þar af eru nú 3 á gjörgæslu og 1 þeirra í öndunarvél
1 sjúklingur hefur látist á Landspítala í III bylgju faraldursins
1.225 sjúklingar eru í eftirliti Covid-19 göngudeildar, þar af 212 börn
38 starfsmenn eru í sóttkví A
22 starfsmenn eru í einangrun