Frá viðbragðsstjórn og farsóttanefnd Landspítala:
Landspítali er á hættustigi vegna faraldurs COViD-19. Viðbragðsáætlun Landspítala vegna farsótta hefur því verið virkjuð og hefur viðbragðsstjórn og farsóttanefnd fundað daglega. Vegna stöðunnar hefur verið ákveðið að fundir verði þrisvar í viku, nema aðstæður breytist. Allar ákvarðanir vegna sóttvarna og takmarkana þeim tengdar eru teknar á þeim miðlæga vettvangi og eru starfsmenn og stjórnendur hvattir til að kynna sér nýjustu ákvarðanir á degi hverjum á innri upplýsingavef spítalans.
Tilkynningar og áréttingar dagsins
Á Landspítala eru nú:
21 sjúklingur inniliggjandi vegna COVID19 – 73 alls frá upphafi þriðju bylgju faraldursins
- Þar af 3 á gjörgæslu og tveir í öndunarvél
1.172 sjúklingar eru í eftirliti Covid-19 göngudeildar, þar af 190 börn
40 starfsmenn eru í sóttkví A
18 starfsmenn eru í einangrun