Nýr Landspítali ohf.(NLSH) stendur fyrir viðgerð á vatnslögn í brunahana sunnan við gamla spítalann við Hringbraut föstudaginn 23. október 2020.
Viðgerðin hefst kl. 9:00 og lýkur síðdegis.
Vegna þessa þarf að loka göngustíg við suðurvegg gamla spítala tímabundið meðan á framkvæmdum stendur.
NLSH þarf líka að fara í viðgerðir á snjóbræðslu í akstursleið suður af gámasvæði við vörumóttöku og ætlunin að gera í það í framhaldi af viðgerð á vatnslögninni.
Settar verða upp merkingar um lokanir.