Frá viðbragðsstjórn og farsóttanefnd Landspítala:
Landspítali er á neyðarstigi vegna faraldurs COViD-19. Viðbragðsáætlun Landspítala vegna farsótta hefur því verið virkjuð að fullu og funda viðbragðsstjórn og farsóttanefnd daglega og oftar ef þörf krefur. Allar ákvarðanir vegna sóttvarna og takmarkana þeim tengdar eru teknar á þeim miðlæga vettvangi og eru starfsmenn og stjórnendur hvattir til að kynna sér nýjustu ákvarðanir á degi hverjum á innri upplýsingavef spítalans.
Tilkynningar og áréttingar dagsins
1. Þakklæti
Farsóttanefnd og viðbragðsstjórn vilja koma á framfæri þakklæti til starfsfólks sem nú glímir við faraldurinn við erfiðar aðstæður. Fjölmargir starfsmenn ganga nú vaktir á COVID deildum spítalans, bæði heimadeildum sínum en margir koma af öðrum einingum til hjálpar. Að sinna hjúkrun og lækningum við þessar aðstæður er mjög kerfjandi og það ber að þakka.
2. Áframhaldandi rakning smita og skimun
Í dag fara fram skimanir meðal starfsfólks á Landakoti og víðar vegna mögulegrar útsetningar í hópsmiti sem tengist Landakoti.
3. Þjónusta á Landakoti
Aukið hefur verið við þjónustu við sjúklinga á Landakoti, m.a. verður unnt að sinna myndgreiningarransóknum og aukin læknisfræðilegur stuðningur. Þá verður sömuleiðis aukin þjónusta við starfsfólk Landakots sem aðstæðna vegna á erfitt með að nálgast mat i neysluhléum. Þá verður komið fyrir fleiri munaskápum og annarri nauðsynlegri starfsmannaaðstöðu.
4. Skimanir sjúklinga fyrir flutning
Farsóttanefnd tók þá ákvörðun í gær, 26. október að skima alla sjúklinga sem flytjast frá Landspítala á aðrar stofnanir. Þar er meðtalið Grensásdeild, Kleppur og Vífilsstaðir. Að svo stöddu er ekki nauðsynlegt að skima sjúklinga sem flytjast milli Fossvogs og Hringbrautar. Sjúklingar sem koma til meðferðar frá öðrum stofnunum og fara þangað aftur skal skima fyrir brottför. Ekki er nauðsynlegt að einangra sjúklinga á meðan beðið er eftir niðurstöðu þar sem hér er um að ræða skimun einkennalausra. Eftir sem áður gildir það verklag að ef tekið er sýni vegna einkenna skal einangra sjúkling þar til niðurstaða liggur fyrir.
Þetta gildir þar til annað er ákveðið.
5. Á Landspítala eru nú:
56 sjúklingar inniliggjandi vegna COVID19 – 120 alls frá upphafi III bylgju faraldursins
- Þar af 1 á gjörgæslu og er hann í öndunarvél
1.031 sjúklingar eru í eftirliti Covid-19 göngudeildar, þar af 183 börn
40 starfsmenn eru í einangrun vegna COVID19
322 starfsmenn eru í sóttkví (A: 77 B: 157 C:47)