Frá viðbragðsstjórn og farsóttanefnd:
1. Hópsmit tengd Landakoti
Nýgreind smit meðal starfsmanna eru í rakningu og er uppruni þeirra ekki ljós.
Starfsmenn: 72
Sjúklingar: 68
Alls hópsmit: 140
2. Á Landspítala eru nú:
68 sjúklingar inniliggjandi vegna COVID19 – 149 alls frá upphafi 3. bylgju faraldursins
- Þar af 4 nú á gjörgæslu og tveir í öndunarvél
8 andlát hafa orðið á Landspítala í 3. bylgju, þar af eitt á síðastliðnum sólarhring
720 sjúklingar eru í eftirliti Covid-19 göngudeildar, þar af 113 börn
62 starfsmenn eru í einangrun vegna COVID-19
186 starfsmenn eru í sóttkví (A: 34 B: 45 C:107)