Frá viðbragðsstjórn og farsóttanefnd:
1. Landspítali er á neyðarstigi vegna COVID-19 og mikið álag er á spítalanum. Sérstök áskorun er skortur á legurýmum vegna annarra vandamála en COVID-19.
2. Á Landspítala er staðan þessi:
74 sjúklingar eru inniliggjandi vegna COVID-19 – 160 alls frá upphafi 3. bylgju faraldursins.
- Þar af eru nú 4 á gjörgæslu og tveir í öndunarvél
10 andlát hafa orðið á Landspítala í 3. bylgju
612 sjúklingar eru í eftirliti Covid-19 göngudeildar, þar af 95 börn
61 starfsmenn eru í einangrun vegna COVID-19
92 starfsmenn eru í sóttkví sem skiptist þannig; 31 eru í sóttkví A, 35 í sóttkví B og 26 í sóttkví C