Kæra samstarfsfólk!
Neyðarástand í loftslagsmálum ógnar okkar helsta forgangsmáli, heilbrigðinni. Vísindin segja okkur að bregðast þurfi strax við. Heilbrigðiskerfið er talið bera ábyrgð á um 5% af losun kolefnis á heimsvísu og í því ljósi er afar mikilvægt að við á Landspítala öxlum ábyrgð. Til viðbótar, þá skiptir miklu máli fyrir samfélagið að stórar stofnanir með stór kolefnisspor geri sitt. Við settum okkur því metnaðarfull loftslagsmarkmið árið 2016; 40% samdrátt í kolefnisspori frá árinu 2015 fyrir lok ársins 2020. Það er ánægjulegt að segja frá því að bráðabirgðatölur benda til þess að það muni nást! Þetta höfum við gert með ýmsum hætti og þannig náð að draga úr losun um 1900 tonna CO2-ígilda sem jafngildir árs akstri um 800 bíla. Þessi öfluga vinna okkar hefur vakið athygli og í dag fékk Landspítali Loftslagsviðurkenningu Festu og Reykjavíkurborgar. Þessi mikilvæga viðurkenning er árlega veitt fyrir eftirtektarverðan árangur í loftlagsmálum. Til hamingju öll, þessu getum við verið stolt af!
Evrópudagur sjúkraliða var í gær, 26. nóvember. Sjúkraliðar eru ein burðarstétta heilbrigðiskerfisins og ef einhver var í vafa um það þá sýndi það sig með ýmsum hætti nú í ár, þar sem 230 sjúkraliðar skráðu sig í bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar og fóru víða til starfa. Sjúkraliðar starfa mjög nálægt sjúklingum okkar og gegna lykilhlutverki í þjónustu við þá. Störf sjúkraliða eru spennandi og mikilvæg í flóknu gangverki Landspítala (myndskeið).
Landspítali er stærsti vettvangur náms í heilbrigðisvísindum á Íslandi. Hjá okkur eru um 1600-1800 nemar í starfstengdu námi á ári hverju. Við reynum að mæta þeim nemum þannig að þeir geti hugsað sér starfa hjá okkur áfram enda slá fyrstu skrefin á starfsævinni tóninn. Á menntadeild spítalans bjóðum við öllum heilbrigðisstéttum starfsþróun m.a. með herminámi sem fram fer í glæsilegu hermisetri spítalans. Þar læra þátttakendur teymisvinnu við aðstæður sem eru nærri því sem gerst getur í raunveruleikanum. Fjölmennasta stétt Landspítala er hjúkrunarfræðingar og við höfum í nokkur ár boðið nýútskrifuðum hjúkrunarfræðingum starfsþróunarár (myndskeið) sem notið hefur mikilla vinsælda. Þar er áhersla á hæfni og þekkingu þar sem árangursrík hjúkrun og öryggi sjúklinga eru í öndvegi.
Það hefur verið mikið álag á spítalanum vegna COVID-19 faraldursins og þarf ekki að tíunda það fyrir ykkur. Í vikunni sáum við okkur fært að færa spítalann af hættustigi niður á óvissustig, þar sem samfélagslegum smitum fór fækkandi og dró úr álaginu á spítalanum. Við vonum svo sannarlega að sú staða haldist inn í aðventuna og að samtakamáttur landsmanna tryggi úthald þar til bóluefni getur hjálpað okkur í baráttunni við veiruna. Það eru þó alvarlegar blikur á lofti og ég vil eindregið hvetja alla til að huga sérstaklega vel að sóttvörnum í sínu nærumhverfi og ganga löturhægt um gleðinnar dyr. Ég deili hér með ykkur myndskeiði af starfsfólki á A6, lungnadeild, sem var umbreytt í COVID deild en sinnir nú á ný sínu reglulega hlutverki. Hér slær starfsfólk á létta strengi og sýnir aðdáunarverða takta í því eins og öðru. Eins og sést hérna fyrir neðan er þetta er áskorun á aðrar deildir og vinnustaði í heilbrigðisþjónustu!
Nú ríður á að þetta sé nú ekki bara stund milli stríða!
Góða helgi – ferðist innanhúss!
Páll Matthíasson
Ljósmynd: Sigurjón Ragnar ljósmyndari