Styrkir Vísindasjóðs Landspítala til ungra vísindamanna á spítalanum verða afhentir í Hringsal miðvikudaginn 2. desember 2020 milli kl. 12:00 og 13:00. Viðburðinum verður streymt á Facebook og innanhúss einnig á Workplace.
Fundarstjóri verður Ingibjörg Gunnarsdóttir, deildarstjóri næringarstofu Landspítala og prófessor við Háskóla Íslands.
Dagskrá
Ávarp
Inga Þórsdóttir, forseti Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands
Erindi
Ungur vísindamaður og hvað svo? Klínískur rannsakandi á Landspítala
- Þórdís K. Þorsteinsdóttir, forstöðumaður Rannsóknarstofu í bráðafræðum og dósent við Háskóla Íslands
Styrkhafi sem ungur vísindamaður 2012
Afhending styrkja
Páll Matthíasson, forstjóri Landspítala
Styrkhafar kynna vísindaverkefni sín með örfyrirlestrum