„Umbætur og lærdómur á Covid-tímum“ er yfirskrift umbótaráðstefnu Landspítala sem verður fimmtudaginn 17. desember 2020, kl. 13:30 til 15:30 á Netinu.
Á þessari árlegu ráðstefnu verður sjónum beint að Covid-19 og viðbragði spítalans í faraldrinum ásamt því að litið verður til umbótastarfs kringum faraldurinn og horft til framtíðar í kjölfarið.
Umbótaráðstefnan verður að þessu sinni aðeins í rafheimum, í beinni útsendingu á Facebook Landspítala. Upptaka verður aðgengileg eftir ráðstefnuna.