Landspítali vekur athygli á því að mikið á lag er núna á spítalanum, meðal annars á bráðamóttöku í Fossvogi. Fólk sem leitar á bráðamóttökuna vegna vægari slysa eða veikinda má því gera ráð fyrir langri bið eftir þjónustu. Á bráðamóttökunni er sjúklingum núna forgangsraðað eftir bráðleika og ef kostur er vísað á heilsugæslustöðvar eða Læknavakt utan þjónustutíma heilsugæslu. Á tímum heimsfaraldurs Covid-19 er sérstaklega mikilvægt er að almenningur taki tillit til ofangreindra aðstæðna á bráðamóttöku, ef mögulegt er.
Kvöld- og helgarvakt Læknavaktar
Læknavaktin í Austurveri við Háaleitisbraut er með opna móttöku alla virka daga kl. 17-23:30 og um helgar frá kl. 9-23:30.
Símavakt allan sólarhringinn.
Hjúkrunarfræðingar eru á vakt allan sólarhringinn í símum 1770 og 1700 og sinna þar faglegri símaráðgjöf og vegvísun í heilbrigðiskerfinu fyrir allt landið. Sérfræðingar hjá 1770 meta þörf fyrir þjónustu og koma hlutum í farveg.
19 heilsugæslustöðvar á höfuðborgarsvæðinu
Listi yfir fimmtán heilsugæslustöðvar sem tilheyra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Einkareknar heilsugæslustöðvar eru síðan starfræktar í fjórum hverfum höfuðborgarsvæðisins:
Heilsugæslan Höfða
Heilsugæslan Lágmúla
Heilsugæslan Salahverfi
Heilsugæslan Urðarhvarfi
Þjónustuvefsjá á Heilsuveru
Á Heilsuveru er þjónustuvefsjá þar sem einfalt er að finna næstu heilsugæslustöð og þá þjónustu sem í boði er um land allt. Heilsuvera er vefur fyrir almenning um heilsu og áhrifaþætti hennar. Þar er einnig að finna öruggt vefsvæði þar sem hægt er að eiga í samskiptum við starfsfólk heilbrigðisþjónustunnar og nálgast gögn úr eigin sjúkraskrá. Heilsuvera er samstarfsverkefni Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og Embættis landlæknis.
Bráðadeild Landspítala
Um góða þjónustu og rúman þjónustutíma heilsugæslu og Læknavaktar