Í dag, miðvikudaginn 13. janúar 2021, tekur gildi ný reglugerð um samkomutakmarkanir og gildir hún til 17. febrúar.
Nú mega 20 manns koma saman ef rýmið rúmar þann fjölda miðað við tveggja metra fjarlægðarmörk.
Þetta er eina atriði reglugerðarinnar sem hefur áhrif á gildandi reglur á Landspítala. Áfram gilda grímuskylda, hópaskipting, fjöldi á kaffistofum og vandaðar persónulegar sóttvarnir.