Jafnréttisnefnd Landspítala ásamt heilbrigðisvísindasviði Háskólans á Akureyri, hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands, jafnréttisfulltrúa HÍ, og menntavísindasviði HÍ efna til málþings um kynjað starfsval í viðjum staðalímynda þriðjudaginn 2. febrúar 2021 kl. 14:00-15:40.
Málþingið verður haldið á vefnum en nánari upplýsingar er hægt að sjá hér.
Málþingið er hluti af jafnréttisdögum í Háskóla Íslands.
Fundarstjóri: Þórður Kristinsson, kennari og doktorsnemi við menntavísindasvið Háskóla Íslands.
Dagskrá
14:00–14:05 Setning málþings. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
14:05–14:25 Slá á einkenni eða mæta undirliggjandi vanda. Hrafnhildur Snæfríðar- og Gunnarsdóttir, hjúkrunarfræðingur og kynjafræðingur
14:25–14:40 Fjölgun karlmanna í hjúkrunarfræði; til hvers og hvernig? Gísli Kort Kristófersson, dósent í hjúkrunarfræði við HA
14:40–14:55 Stelpur og tækni - átak Háskólans í Reykjavík til að auka áhuga kvenna á tækninámi. Þórunn Hilda Jónsdóttir, verkefna- og viðburðastjóri í HR
14:55–15:10 Reynsla, upplifun og frásagnir kennslukarla. Andri Rafn Ottesen, kennslukarl í Garðaskóla
15:10–15:40 Umræður