Árið 2020 voru 1.713 nemendur skráðir í nemendaskráningarkerfi Landspítala og árið 2019 voru skráðir 1.599 nemendur. Allir nemendur eiga að vera skráðir í nemendaskráningarkerfið.
Árið 2020 voru skráðir nemendur í námi á framhaldsskólastigi 249, háskólanemendur í grunnnámi 825 og háskólanemendur í framhaldsnámi 638. Erlendir nemendur voru 47 talsins.
Árið 2019 voru skráðir nemendur á framhaldsskólastigi 209, háskólanemendur í grunnnámi 723 og háskólanemendur í framhaldsnámi 667. Erlendir nemendur voru 90 talsins.
Nemendafjöldi á Landspítala 2020
Nemendafjöldi á Landspítala 2019
Nauðsynlegt er að skrá alla nemendur í nám á Landspítala. Í nemakerfinu kemur fram hvenær og hvar á spítalanum nemendur eru í námi og haldið utan um að nemandi hafi undirritað þagnarheit og reglur um notkun sjúkraskrárupplýsinga. Tölvuaðgangur er veittur og auðkenniskort útbúin samkvæmt upplýsingum úr kerfinu. Nemendur sem koma inn á spítalann í skipulagt nám, t.d. frá Háskóla Íslands, eru skráðir samkvæmt upplýsingum þaðan og leitast er við að afgreiða öll undirskriftar- og aðgangsmál áður en nemendur koma inn á spítalann. Nauðsynlegt er að tilkynna um nemendur sem koma á eigin vegum eða á annan hátt inn á spítalann (sjá neðar).
Nemendur hafa verið skráðir í nemaskráningarkerfið síðan árið 2010. Samtals fjöldi nema sem tekinn hefur verið saman árlega er eftirfarandi:
Ár Fjöldi nemenda
2010 1.193
2011 1.359
2012 1.532
2013 1.530
2014 1.607
2015 1.612
2016 1.755
2017 1.767
2018 1.521
2019 1.599
2020 1.713
Upplýsingar varðandi skráningu nema, gátlista, þagnarskylduskjöl o.fl.
Upplýsingar og umsóknarform fyrir íslenska nemendur sem eru í námi erlendis
Upplýsingar og umsóknarform fyrir erlenda nemendur
=> sjá síðan fyrirsögnina "Want to join our team?", smella á "International students at Landspítali".
Upplýsingar um skráningu nemenda og aðgangsmál veitir Hulda Pálsdóttir, verkefnastjóri á menntadeild Landspítala, netfang huldap@landspitali.is, sími 543 1415.