Krabbameinsskimanir: Óvissu eytt, starfsfólki þakkað
Heilsugæslan og Landspítali samstíga við yfirfærslu skimunarverkefnis
Mikilvægar breytingar voru gerðar á skipulagi, stjórn og framkvæmd skimunar fyrir krabbameinum um síðustu áramót. Landspítali, í samvinnu við Sjúkrahúsið á Akureyri, tók þá að sér framkvæmd skimunar fyrir krabbameini í brjóstum og sérskoðun á brjóstum og leghálsi en heilsugæslan um land allt fékk það hlutverk að annast framkvæmd skimana fyrir krabbameini í leghálsi. Breytingar þessar fólu meðal annars í sér yfirfærslu margvíslegra verkefna frá Krabbameinsfélagi Íslands til Heilsugæslunnar, Landspítala og Sjúkrahússins á Akureyri. Sú yfirfærsla hefur hins vegar ekki verið hnökralaus þegar horft er til heildarverkefnisins og því miður skapað áhyggjur í samfélaginu. Heilsugæslan og Landspítali áréttuðu því í vikunni að aðstandendum verkefnisins þyki mjög miður að óöryggi hafi skapast um þessa mikilvægu þjónustu og fullvissuðu almenning um að allir aðilar verkefnisins keppist nú við að eyða óvissu fólks með fjölbreyttum hætti.
Þegar Landspítala og Sjúkrahúsinu á Akureyri var falin fyrrnefnd ábyrgð tóku stjórnendur spítalans ákvörðun um að leita eftir því við Krabbameinsfélag Íslands að skimun fyrir brjóstakrabbameini yrði áfram í Skógarhlíð til loka mars og bjóða fyrrverandi starfsmönnum Krabbameinsfélagsins störf á Landspítala. Það gekk eftir og með því móti var hægt að tryggja fullnægjandi tímaframboð og hnökralausa framkvæmd skimunar líkt og verið hefur. Ný og glæsileg brjóstamiðstöð Landspítala verður opnuð á Eiríksgötu 5 í apríl.
Einnig var ákveðið að fela Landspítala að sjá um sérskoðanir á leghálsi í kjölfar skimunar á vegum Heilsugæslunnar. Kvennadeildir spítalans náðu á örskömmum tíma að byggja upp vandaða og öfluga umgjörð í kringum þá þjónustu og hefur hún staðið konum til boða frá janúarbyrjun. Þrátt fyrir að vera nýtt verkefni á spítalanum hefur allt gengið samkvæmt áætlun.
Starfsfólk Landspítala hefur leyst sín verkefni vegna breytinganna afburðavel úr hendi og er því hér með þakkir færðar.
Vísindastarf: Merkileg rannsókn á langvinnum nýrnasjúkdómi
Rannsókn um algengi langvinns nýrnasjúkdóms
Nýlega birtist grein í hinu virta tímariti Kidney International sem fjallar um alþjóðlega mikilvæga rannsókn Arnars Jans Jónssonar, doktorsnema og læknis og samstarfsfólks hans, um algengi langvinns nýrnasjúkdóms á Íslandi. Rannsóknina vann Arnar undir handleiðslu Ólafs Skúla Indriðasonar nýrnalæknis og Runólfs Pálssonar, nýrnalæknis og prófessors.
Rannsóknin þykir marka tímamót varðandi þekkingu á faraldsfræði langvinns nýrnasjúkdóms, sem er samheiti yfir langvinna nýrnasjúkdóma af margvíslegum toga og einkennist af skerðingu á nýrnastarfsemi eða öðrum teiknum um nýrnaskemmdir sem varað hafa í 3 mánuði eða lengur. Niðurstöðurnar sýna meðal annars að líklegt er að fyrri rannsóknir hafi ofmetið algengi langvinns nýrnasjúkdóms. Hið öfluga vísindastarf á Landspítala á svo sannarlega öflugan liðsmann í Arnari Jan og samstarfsfólki hans í rannsóknum.
Eftirgæsla: Dýrmæt þjónusta eftir gjörgæsludvöl
Þjónusta eftir gjörgæsludvöl
Talandi um vísindastarf þá langar mig til að nefna dr. Rannveigu Jónu Jónasdóttur sem skrifaði fyrir fjórum árum doktorsritgerð í hjúkrunarfræði og heilbrigðisvísindum um þróun skipulagðrar, hjúkrunarstýrðrar eftirgæslu hjá sjúklingum eftir útskrift þeirra af gjörgæsludeild. Eftirgæsla hefur síðan verið innleidd á gjörgæsludeildum Landspítala og verkefnið þykir hafa skilað miklum árangri og aukið gæði meðferðar sjúklinga á spítalanum.
Eftirgæslan snýst um að styðja við bata sjúklinga til lengri og skemmri tíma eftir útskrift þeirra af gjörgæsludeildum. Þróuð var meðferð, byggð á samþættu, kerfisbundnu yfirliti. Meðferðin er skipulögð, hjúkrunarstýrð eftirgæsla og felst í reglubundnu eftirliti gjörgæsluhjúkrunarfræðinga með sjúklingunum frá útskrift af gjörgæsludeild í nokkra mánuði eftir útskrift þaðan, meðal annars með heimsóknum til þeirra. Í mörgum tilvikum snýst þetta um að tengja meðferð sjúklinga á gjörgæsludeildum við meðferð þeirra á legudeildum, sem oft er til lengri tíma.
Dr. Rannveig Jóna hóf störf sem hjúkrunarfræðingur hjá Landspítala fyrir liðlega aldarfjórðungi og hefur með margvíslegum hætti tengt fræði við framkvæmd, til dæmis með þessum hætti. Vel gert.