Kæra samstarfsfólk!
Jarðhræringar síðustu daga hafa ekki farið fram hjá neinum. Á Landspítalanum fundum við rækilega fyrir jarðskjálftum fyrsta daginn í þessari hrinu en skemmdir urðu blessunarlega minni háttar. Segja má að þar hafi byggingar og kerfin okkar staðist álagspróf. Viðbragðsstjórn spítalans kom saman og yfirfór helstu viðbragðsáætlanir og mikilvægt er að allir starfsmenn séu áfram vakandi fyrir hættum, sérstaklega í umhverfi sjúklinganna. Við fylgjumst áfram náið með framvindu mála enda atburðirnir enn í fullum gangi.
Enn erum við í þeirri stöðu á spítalanum að mikið álag er hjá okkur og er birtingarmynd þess almenningi einna helst sýnilegt í annríki bráðamóttöku. Þar er mjög mikið að gera en það sama gildir um legudeildir spítalans þar sem mikið er um yfirlagnir. Ástæðan fyrir þessu er sem fyrr einkum sú að einstaklingar sem lokið hafa meðferð komast ekki frá okkur þar sem þjónustu við þá skortir utan spítalans. Svo háttar nú um tæplega hundrað einstaklinga hjá okkur en af þeim eru um helmingur í biðrýmum en aðrir á legudeildum spítalans. Þetta hefur auðvitað áhrif á starfsemi spítalans en mikilvægast er þó að þessir einstaklingar fái viðeigandi þjónustu. Er stöðugt unnið að því af hálfu heilbrigðisyfirvalda og heilbrigðisstofnana að laga kerfið og þjónustuna að breyttum þörfum. Okkar markmið er að veita öllum eins góða þjónustu og mögulegt er en þetta eru sannarlega krefjandi aðstæður fyrir sjúklinga og starfsfólk.
Bráðadagurinn er í dag! Þetta er mikill hátíðisdagur hjá okkur á spítalanum en auðvitað sér í lagi hjá kempunum okkar í bráðaþjónustunni. Nú ber þó aldeilis vel í veiði fyrir alla áhugasama því að þessi árlega metnaðarfulla dagskrá verður nú öllum opin í beinni útsendingu á Facebook-síðu Landspítala kl. 13-17. Þema ráðstefnunnar er samskipti og samvinna og verða kynntar spennandi rannsóknir og verkefni sem unnin hafa verið í tengslum við bráðaþjónustu í landinu. Þetta er sannkölluð uppskeruhátíð og verða flutt bæði vísindaleg ávörp og innlegg af öðrum toga og eru framsögumenn bæði innlendir og erlendir. Þetta er auðvitað hluti af símenntun starfsfólks og ánægjulegt að sem flestir geti tekið þátt í þessari rafrænu ráðstefnu. Þess má geta að ráðstefnan verður aðgengileg í upptöku á samfélagsmiðlum spítalans að útsendingu lokinni.
Góða helgi!
Páll Matthíasson