Hátíðarguðsþjónusta verður í sjónvarpi Landspítala og öðrum miðlum spítalans á páskadag 4. apríl 2021
Hátíðarguðsþjónustunni verður sjónvarpað á rás 53 um öll hús Landspítala kl. 9:00 og hún síðan endurtekin kl. 15:00.
Einnig verður hægt að nálgast útsendinguna á vef og Facebook Landspítala á páskadag eftir kl. 9:00.
Við guðsþjónustuna þjóna:
Dagbjört Eiríksdóttir, djákni, sr. Díana Ósk Óskarsdóttir er flytur hugvekju, sr. Eysteinn Orri Gunnarsson, sr. Guðlaug Helga Ásgeirsdóttir, sr. Gunnar Rúnar Matthíasson, sr. Hjalti Jón Sverrisson, sr. Ingólfur Hartvigsson, Rósa Kristjánsdóttir djákni og sr. Sveinbjörg Katrín Pálsdóttir. Kórsöng annast félagar úr Kammerkór Hafnarfjarðar undir stjórn Helga Bragasonar organista.