Frá farsóttanefnd:
Sóttvarnalæknir hefur birt leiðbeiningar um áframhaldandi notkun bóluefnisins Vaxzevria frá Astra Zeneca. Þessar leiðbeiningar eru unnar í samráði við blóðmeinafræðinga Landspítala.
Enn er beðið niðurstöðu um hvernig bólusetningu þeirra sem þegar hafa fengið fyrri skammt af Vaxzevria verður háttað. Farsóttanefnd mun hlekkja í þær niðurstöður á miðlum Landspítala um leið og þær liggja fyrir.