Mikael Smári Mikaelsson hefur verið ráðinn yfirlæknir bráðalækninga á Landspítala.
Mikael Smári lauk námi frá læknadeild Háskóla Íslands í júní 2000 og hlaut almennt lækningaleyfi hér á landi árið 2002.
Mikael Smári er með sérfræðileyfi í bráðalækningum í Ástralíu frá 2012 og á Íslandi frá 2015.
Hann stundaði nám og störf á ýmsum deildum sjúkrahúsa í Christchurch og Dunedin á Nýja-Sjálandi innan ramma sérnáms í bráðalækningum á vegum Australasian College for Emergency Medicine (ACEM).
Frá árinu 2015 hefur Mikael Smári verið sérfræðilæknir á bráðamóttöku Landspítala Fossvogi og hefur verið staðgengill yfirlæknis.
Hann hefur mikla reynslu af bráðalækningum utan sjúkrahúsa bæði hérlendis og erlendi og hefur m.a. verið þyrlulæknir frá því hann hóf störf á bráðamóttökunni árið 2015. Þá hefur hann verið formaður stjórnar Félags bráðalækna á Íslandi frá 2017.
Mikael tók við starfi yfirlæknis bráðalækninga þann 1. apríl 2021.