Frá bráðamóttökunni í Fossvogi:
Nú hefur reglum vegna viðveru aðstandanda verið breytt á bráðamóttöku Landspítala Fossvogi.
Hafa ber í huga að á bráðamóttökunni er ekki unnt að stjórna fjölda sjúklinga á deildinni hverju sinni.
Vegna hættu af yfirálagi á sóttvarnir og vegna takmarkana í húsnæði þarf að halda fjölda aðstandanda í fylgd með sjúklingum í lágmarki. Einn fylgdarmaður/aðstandandi er leyfilegur með hverjum sjúklingi þegar aðstæður leyfa.
Vaktstjóri og stjórnandi læknir geta afturkallað leyfi aðstandanda til veru á deildinni við ákveðnar aðstæður til þess að tryggja öryggi.
Í undantekningartilfellum getur vaktstjóri eða stjórnandi læknir veitt leyfi til þess að fleiri aðstandendur séu viðstaddir. Er það metið í hverju tilfelli fyrir sig.
Ekki er æskilegt að margir aðstandendur skiptist á að koma til sjúklings heldur skal heildarfjölda þeirra haldið í lágmarki eins og kostur er.
Æskilegt er að fylgdarmaður/aðstandandi sem er með sjúklingi á bráðamóttöku upplýsi aðra í fjölskyldunni um gang mála í samráði við sjúkling.