Frá farsóttanefnd Landspítala:
Landspítali er á hættustigi.
Staðan kl. 12: Fjórir eru inniliggjandi á legudeildum, 461 eru í eftirliti á COVID göngudeild, þar af 41 barn. Níu starfsmenn eru í einangrun, 15 í sóttkví A og í vinnusóttkví eru nú 242.
Sérstakar tilkynningar
1. Starfsfólk COVID-göngudeildar beitir tvenns konar flokkun við mat á áhættu smitaðra einstaklinga á að veikjast alvarlega af völdum COVID-19. Annars vegar er það svokölluð litakóðun einkenna þar sem grænn litur táknar fremur væg einkenni, gulur litur miðlungssvæsin einkenni og rauður litur svæsin einkenni. Hafa ber í huga að einkenni geta versnað mjög hratt þannig að einstaklingur sem fær græna litakóðun getur skyndilega orðið gulur eða jafnvel rauður síðar sama dag. Hins vegar er áhætta einstaklinga flokkuð byggt á aldri og undirliggjandi sjúkdómum í lága, meðal og mikla áhættu. Við mat á fólki með kórónuveirusmit er notast við báðar þessar flokkanir. Þannig getur einstaklingur sem flokkast grænn vegna einkenna engu að síður verið í mikilli hættu á að veikjast alvarlega vegna undirliggjandi áhættuþátta í hæsta flokki.
2. Í gær greindust tveir starfsmenn og einn inniliggjandi sjúklingur með COVID-19. Að venju fór fram umfangsmikil rakning sem leiddi til þess að tveir sjúklingar og níu starfsmenn voru settir í sóttkví A og 11 starfsmenn í vinnusóttkví C. Uppákomur af þessu tagi, þ.e. að smit greinist óvænt inni í starfseminni eru verulegt áhyggjuefni nú þegar veiran hefur náð mikilli útbreiðslu og tugir smitaðra eru utan sóttkvíar við greiningu. Við brýnum því enn og aftur fyrir starfsfólki Landspítala að fara í skimun ef þeir finna fyrir einkennum.
3. Hótelúrræði fyrir starfsfólk Landspítala sem þarfnast aðstöðu annað hvort vegna vinnusóttkvíar eða vegna smits/sóttkvíar á heimili er í höfn. Beiðni um hóteldvöl berist á netfangið monnunarteymi@landspitali.is.