Landspítali er á hættustigi, sem er annað af þremur viðbragðsstigum Landspítala. Ástæðan er faraldur COVID-19. Skilgreining hættustigs samkvæmt viðbragðsáætlun Landspítala er eftirfarandi:
Orðinn atburður sem kallar á að starfað sé eftir viðbragðsáætlunum. Fjöldi þolenda af þeirri stærðargráðu að aukið álag skapast á ýmsar deildir (gulur litur í gátlistum).
Viðbragðsáætlun Landspítala vegna farsótta hefur því verið virkjuð og funda viðbragðsstjórn og farsóttanefnd daglega.
Staðan kl. 12:
Fimmtán sjúklingar eru inniliggjandi á Landspítala með COVID-19, 13 á legudeildum og tveir á gjörgæslu, annar í öndunarvél.
Fimm voru lagðir inn í gær vegna COVID. Tvær útskriftir voru síðastliðinn sólarhring.
1.232 eru í eftirliti á COVID göngudeild, þar af 188 börn. Tveir eru á rauðu, 28 einstaklingar flokkast gulir og munu einhverjir þeirra koma til skoðunar og frekara mats í dag.
19 starfsmenn eru í einangrun, 18 í sóttkví A og 82 starfsmenn eru í vinnusóttkví.
Sérstakar tilkynningar
- Samkvæmt viðbragðsáætlun um fjölgun legurýma fyrir COVID sjúklinga er nú verið að undirbúa næstu deild þar sem viðbúið er að smitsjúkdómadeildin fyllist á næstu sólarhringum.