Landspítali er á hættustigi, sem er annað af þremur viðbragðsstigum Landspítala. Ástæðan er faraldur COVID-19. Skilgreining hættustigs samkvæmt viðbragðsáætlun Landspítala er eftirfarandi:
Orðinn atburður sem kallar á að starfað sé eftir viðbragðsáætlunum. Fjöldi þolenda af þeirri stærðargráðu að aukið álag skapast á ýmsar deildir (gulur litur í gátlistum).
Viðbragðsáætlun Landspítala vegna farsótta hefur því verið virkjuð og funda viðbragðsstjórn og farsóttanefnd daglega.
Staðan kl. 12
Nú eru 16 sjúklingar inniliggjandi á Landspítala vegna COVID-19, 15 á legudeildum og 1 á gjörgæslu. Fjórir voru lagðir inn í gær vegna COVID. Fjórir voru útskrifaðir síðastliðinn sólarhring. Alls hafa 30 sjúklingar lagst inn í fjórðu bylgju COVID-19.
1.351 eru í eftirliti á COVID göngudeild, þar af 229 börn. Einn er á rauðu og 17 einstaklingar flokkast gulir og munu einhverjir þeirra koma til skoðunar í dag. 20 starfsmenn eru í einangrun, 20 í sóttkví A og 114 starfsmenn eru í vinnusóttkví.