Landspítali er á hættustigi, sem er annað af þremur viðbragðsstigum Landspítala. Ástæðan er faraldur COVID-19. Skilgreining hættustigs samkvæmt viðbragðsáætlun Landspítala er eftirfarandi:
Orðinn atburður sem kallar á að starfað sé eftir viðbragðsáætlunum. Fjöldi þolenda af þeirri stærðargráðu að aukið álag skapast á ýmsar deildir (gulur litur í gátlistum).
Viðbragðsáætlun Landspítala vegna farsótta hefur því verið virkjuð og funda viðbragðsstjórn og farsóttanefnd daglega.
Staðan kl. 12
22 sjúklingar liggja á Landspítala með COVID, þar af 3 á gjörgæslu.
Alls hafa 43 sjúklingar lagst inn á Landspítala með COVID í fjórðu bylgju faraldursins. Um þriðjungur þeirra er óbólusettur. Fimm hafa þurft gjörgæslustuðning.
Nú eru 1.434 í COVID göngudeild spítalans og hafa aldrei verið fleiri. Enginn er á rauðu en 45 einstaklingar flokkast gulir og þurfa nánara eftirlit. 19 starfsmenn eru í einangrun, 16 í sóttkví A og 99 starfsmenn eru í vinnusóttkví (sóttkví C).
Sérstakar tilkynningar
1. Vegna stöðunnar í faraldri COVID-19 og mikillar útbreiðslu veirunnar í samfélaginu mun ekki verða tekin upp hefðbundin valkvæð starfsemi á skurðstofum að loknum sumarfríum. Öllum bráðum aðgerðum og þeim sem ekki geta beðið er þó sinnt að venju. 6 af 18 skurðstofum spítalans eru lokaðar.
2. Dregið hefur verið úr starfsemi á göngudeildum lyflækninga og aðeins brýnum málum sinnt.