Landspítali er á hættustigi, sem er annað af þremur viðbragðsstigum Landspítala. Ástæðan er faraldur COVID-19. Skilgreining hættustigs samkvæmt viðbragðsáætlun Landspítala er eftirfarandi:
Orðinn atburður sem kallar á að starfað sé eftir viðbragðsáætlunum. Fjöldi þolenda af þeirri stærðargráðu að aukið álag skapast á ýmsar deildir (gulur litur í gátlistum).
Viðbragðsáætlun Landspítala vegna farsótta hefur því verið virkjuð og funda viðbragðsstjórn og farsóttanefnd daglega.
Staðan kl. 15
29 sjúklingar liggja á Landspítala með COVID. 24 sjúklingar liggja á bráðalegudeildum spítalans og eru 17 þeirra fullbólusettir en 7 óbólusettir. Á gjörgæslu eru 5 sjúklingar og 2 þeirra í öndunarvél. Þrír gjörgæslusjúklingar eru fullbólusettir og 2 óbólusettir. Engir sjúklingar í innlögn eru hálfbólusettir.
Alls hafa 63 sjúklingar lagst inn á Landspítala með COVID í fjórðu bylgju faraldursins. Um 40% eru óbólusett. Níu hafa þurft gjörgæslustuðning og fimm þeirra fullbólusettir.
Nú eru 1.383, þar af 303, börn í COVID göngudeild spítalans og hefur fækkað nokkuð. Einn er á rauðu en 42 einstaklingar flokkast gulir og þurfa nánara eftirlit.
20 starfsmenn eru með COVID-19. 11 eru í sóttkví A og 69 sóttkví C.
Sérstakar tilkynningar
1. Starfsfólk og gestir eru minntir á að viðhafa ítrustu sóttvarnir; notkun hlífðargríma, handþvott og sótthreinsun handa með spritti. Áríðandi er að koma ekki á spítalann ef einhverra einkenna sem samræmst geta COVID-19 sýkingu.
Í þeirri bylgju COVID-19 sem nú gengur yfir hefur Landspítali m.a. gripið til eftirtalinna ráðstafanna:
1. Báðar gjörgæsludeildir spítalans taka nú við sjúklingum með COVID-19
2. Smitsjúkdómadeild A7 tekur einungis við COVID-19 sjúklingum
3. Lungnadeild A6 tekur við COVID-19 sjúklingum
4. Unnið er að undirbúningi opnunar fleiri rýma fyrir COVID-19 sjúklinga á þriðju bráðalegudeildinni.
5. Aðrar bráðalegudeildir spítalans hafa aukið viðbúnað sinn til að sinna fjölbreyttari sjúklingahópum
6. Breyttar verklagsreglur við móttöku og meðferð sjúklinga á bráðamóttöku vegna útbreidds smits í samfélaginu
7. Dregið hefur verið úr starfsemi á göngudeildum lyflækninga og einungis brýnustu erindum sinnt. Starfsfólk sinnir nú annarri þjónustu á spítalanum, m.a. á COVID-19 göngudeild.
8. Röntgendeild hefur komið fyrir búnaði á COVID-19 legudeildum og gjörgæslum sem einungis er notaður fyrir COVID-19 sjúklinga og þarf því ekki að flytja þá til myndatöku.
9. COVID-19 göngudeildin í Birkiborg hefur verið efld verulega og tekur á móti sjúklingum sem þurfa sérstakt mat og meðferð.
10. COVID-19 símaeftirlit göngudeildarinnar hefur verið eflt verulega og mönnun styrkt.
11. Frestað hefur verið að hefja hefðbundnar valaðgerðir á skurðstofum spítalans og eru 6 af 18 skurðstofum opnar. Öllum bráðum og lífshótandi aðgerðum er sinnt.
12. Samstarf er við nágrannasjúkrahús um móttöku sjúklinga sem lokið hafa meðferð á Landspítala eða geta lokið sinni meðferð utan hans