Landspítali er á hættustigi, sem er annað af þremur viðbragðsstigum Landspítala. Ástæðan er faraldur COVID-19. Skilgreining hættustigs samkvæmt viðbragðsáætlun Landspítala er eftirfarandi:
Orðinn atburður sem kallar á að starfað sé eftir viðbragðsáætlunum. Fjöldi þolenda af þeirri stærðargráðu að aukið álag skapast á ýmsar deildir (gulur litur í gátlistum).
Viðbragðsáætlun Landspítala vegna farsótta hefur því verið virkjuð og funda viðbragðsstjórn og farsóttanefnd daglega.
Staðan kl. 15
30 sjúklingar liggja á Landspítala með COVID. 25 sjúklingar liggja á bráðalegudeildum spítalans og eru 16 þeirra fullbólusettir en 9 óbólusettir. Á gjörgæslu eru 5 sjúklingar og 4 þeirra í öndunarvél. Fjórir gjörgæslusjúklingar eru fullbólusettir og 1 óbólusettur. Engir sjúklingar í innlögn eru hálfbólusettir.
Alls hafa 68 sjúklingar lagst inn á Landspítala með COVID í fjórðu bylgju faraldursins. Um 40% eru óbólusett. Níu hafa þurft gjörgæslustuðning og sex þeirra fullbólusettir.
Nú eru 1.328, þar af 244, börn í COVID göngudeild spítalans og hefur fækkað nokkuð. Þrír eru á rauðu og 48 einstaklingar flokkast gulir og þurfa nánara eftirlit.
25 starfsmenn eru með COVID-19. 17 eru í sóttkví A og 63 sóttkví C.
Sérstakar tilkynningar
1. Starfsfólk og gestir eru minntir á að viðhafa ítrustu sóttvarnir; notkun hlífðargríma, handþvott og sótthreinsun handa með spritti. Áríðandi er að koma ekki á spítalann ef einhverra einkenna sem samræmst geta COVID-19 sýkingu verður vart.
2. Starfsfólk sem verður minni háttar einkenna vart getur komið í hraðpróf í Birkiborg (s. 543 1902, á bráðamóttöku barna s. 825 5196 og á A3 í Fossvogi (kl. 8-16)
3. Starfsfólk sem þarf PCR einkennasýnatöku getur nú sjálft bókað slíka sýnatöku í Birkiborg í Heilsuveru (heilsuvera.is)
4. Mikið álag er nú á okkar helstu sérfræðingum í smitsjúkdómum og sýkingavörnum. Starfsfólk er minnt á fjölda gæðaskjala þar sem unnt er að nálgast svör við velflestum spurningum sem kunna að vakna.