Landspítali er á hættustigi, sem er annað af þremur viðbragðsstigum Landspítala. Ástæðan er faraldur COVID-19. Skilgreining hættustigs samkvæmt viðbragðsáætlun Landspítala er eftirfarandi:
Orðinn atburður sem kallar á að starfað sé eftir viðbragðsáætlunum. Fjöldi þolenda af þeirri stærðargráðu að aukið álag skapast á ýmsar deildir (gulur litur í gátlistum).
Viðbragðsáætlun Landspítala vegna farsótta hefur því verið virkjuð og funda viðbragðsstjórn og farsóttanefnd daglega.
Staðan kl. 13
25 sjúklingar liggja á Landspítala með COVID. 19 sjúklingar liggja á bráðalegudeildum spítalans og eru 7 þeirra óbólusettir. Á gjörgæslu eru 7 sjúklingar og eru þrír þeirra óbólusettir. Fimm gjörgæslusjúklingar þurfa öndunarvélastuðning og eru tveir þeirra óbólusettir. Engir sjúklingar í innlögn eru hálfbólusettir. Meðalaldur innlagðra er 62 ár.
Alls hafa 82 sjúklingar lagst inn á Landspítala með COVID í fjórðu bylgju faraldursins. Um þriðjungur er óbólusettur. Fjórtán hafa þurft gjörgæslustuðning.
Nú eru 1.200, þar af 264 börn í COVID göngudeild spítalans og fjölgar aðein.s. Þrír sjúklingar eru metnir rauðir og 44 einstaklingar gulir og þurfa nánara eftirlit.
14 starfsmenn eru í einangrun með COVID-19, 6 í sóttkví A og 71 í sóttkví C.