Landspítali er á hættustigi, sem er annað af þremur viðbragðsstigum Landspítala. Ástæðan er faraldur COVID-19. Skilgreining hættustigs samkvæmt viðbragðsáætlun Landspítala er eftirfarandi:
Orðinn atburður sem kallar á að starfað sé eftir viðbragðsáætlunum. Fjöldi þolenda af þeirri stærðargráðu að aukið álag skapast á ýmsar deildir (gulur litur í gátlistum).
Viðbragðsáætlun Landspítala vegna farsótta hefur því verið virkjuð og funda viðbragðsstjórn og farsóttanefnd daglega.
Staðan kl. 12
22 sjúklingar liggja á Landspítala vegna COVID. 15 sjúklingar liggja á bráðalegudeildum spítalans og eru 7 þeirra óbólusettir. Á gjörgæslu eru 7 sjúklingar og eru þrír þeirra óbólusettir. Fimm gjörgæslusjúklingar þurfa öndunarvélastuðning og eru tveir þeirra óbólusettir. Engir sjúklingar í innlögn eru hálfbólusettir. Meðalaldur innlagðra er 62 ár.
Alls hafa 83 sjúklingar lagst inn á Landspítala með COVID í fjórðu bylgju faraldursins. Um þriðjungur er óbólusettur. Fjórtán hafa þurft gjörgæslustuðning.
Nú eru 1.110, þar af 257 börn í COVID göngudeild spítalans og fækkar nokkuð. Tveir sjúklingar eru metnir rauðir og 25 einstaklingar gulir og þurfa nánara eftirlit.
15 starfsmenn eru í einangrun með COVID-19, 11 í sóttkví A og 87 í sóttkví C
1. Starfsmenn eru hvattir til að vakta líðan sína daglega og fara í sýnatöku ef einkenna verður vart. Fari heimilismaður starfsmanns í sýnatöku þá skal starfsmaður vera heima í úrvinnslusóttkví þar til svar liggur fyrir.
Talnaupplýsingar um stöðuna á spítalanum eru birtar á www.landspitali.is.