Maríanna Garðarsdóttir hefur tekið tímabundið við starfi framkvæmdastjóra þjónustusviðs á Landspítala af Jóni Hilmari Friðrikssyni, sem er kominn í leyfi vegna alvarlegs slyss.
Maríanna varð forstöðumaður rannsóknarþjónustu spítalans árið 2019. Hún lauk kandídatsprófi í læknisfræði árið 1999 og sérfræðinámi í myndgreiningu frá Sahlgrenska háskólasjúkrahúsinu í Gautaborg árið 2007. Frá þeim tíma var Maríanna röntgenlæknir á Landspítala og yfirlæknir frá árinu 2014.
Á þjónustusviði Landspítala eru fjórir kjarnar; rannsóknarstofur, blóðbanki og myndgreining í einum klasa. Aðföng (birgðir, flutningar, eldhús, þvottahús, öryggisgæsla), fasteignir og umhverfi í öðrum klasa. Þá er klasi lyfjaþjónustu, ráðgjafarþjónustu, fjarheilbrigðisþjónustu og heilbrigðis- og upplýsingatækni.