Frá Landspítala:
Á forsíðu Morgunblaðsins 25. ágúst 2021 er því slegið upp að skrifstofa Landspítala „hafi blásið út“.
Þetta er misskilningur. Rétt er að stöðugildi um 170 námslækna voru flutt til innan spítalans í maí 2020, frá sviðum og til skrifstofu framkvæmdastjóra lækninga og skýrir það þá aukningu sem dregin er fram. Þessir læknar störfuðu, og starfa enn jafnmikið við sjúklinga og lækningar eins og fyrir breytinguna. Um er að ræða miðlægt utanumhald og skipulag m.a. vegna alþjóðlegrar vottunar Royal College of Physicians í London sem er virtur samstarfsaðili í verkefnum sem þessum víða um heim.
Sérnámið hefur getið sér gott orð og er forsenda bæði klínískrar þjónustu og mönnunar í lækningum til framtíðar. Því er hér um að ræða lækna í sérnámi sem stunda sitt starfsnám á Landspítala og hafa m.a. leikið lykilhlutverk í viðbragði spítalans í COVID faraldrinum. Sérnámslæknar sinna þannig ekki skrifstofustörfum heldur sérnámi sínu og klínískri vinnu á spítalanum.
Morgunblaðið leitaði ekki skýringa eða viðtals við stjórnendur við vinnslu fréttarinnar og kann það að skýra framsetninguna.