Landspítali er á hættustigi, sem er annað af þremur viðbragðsstigum Landspítala. Ástæðan er faraldur COVID-19. Skilgreining hættustigs samkvæmt viðbragðsáætlun Landspítala er eftirfarandi:
Orðinn atburður sem kallar á að starfað sé eftir viðbragðsáætlunum. Fjöldi þolenda af þeirri stærðargráðu að aukið álag skapast á ýmsar deildir (gulur litur í gátlistum).
Viðbragðsáætlun Landspítala vegna farsótta hefur því verið virkjuð og funda viðbragðsstjórn og farsóttanefnd daglega.
Staðan kl. 14
16 sjúklingar liggja á Landspítala vegna COVID. 12 sjúklingar liggja á bráðalegudeildum spítalans og eru 6 þeirra óbólusettir. Á gjörgæslu eru 4 sjúklingar. Engir sjúklingar í innlögn eru hálfbólusettir. Meðalaldur innlagðra er 59 ár.
Alls hafa 88 sjúklingar lagst inn á Landspítala með COVID í fjórðu bylgju faraldursins. Um þriðjungur er óbólusettur. Fimmtán hafa þurft gjörgæslustuðning.
Sjúklingur á sjötugsaldri, með COVID-19 lést á Landspítala á síðasta sólarhring.
Nú eru 947 sjúklingar, þar af 227 börn, í COVID göngudeild spítalans . Þrír sjúklingar eru metnir rauðir og 32 einstaklingar gulir og þurfa nánara eftirlit.
15 starfsmenn eru í einangrun með COVID-19, 33 í sóttkví A, 6 í sóttkví B og 111 í sóttkví C.
Starfsmenn eru hvattir til að vakta líðan sína daglega og fara í sýnatöku ef einkenna verður vart. Fari heimilismaður starfsmanns í sýnatöku þá skal starfsmaður vera heima í úrvinnslusóttkví þar til svar liggur fyrir.