Landspítali er á hættustigi, sem er annað af þremur viðbragðsstigum Landspítala. Ástæðan er faraldur COVID-19. Skilgreining hættustigs samkvæmt viðbragðsáætlun Landspítala er eftirfarandi:
Orðinn atburður sem kallar á að starfað sé eftir viðbragðsáætlunum. Fjöldi þolenda af þeirri stærðargráðu að aukið álag skapast á ýmsar deildir (gulur litur í gátlistum).
Viðbragðsáætlun Landspítala vegna farsótta hefur því verið virkjuð og funda viðbragðsstjórn og farsóttanefnd eftir þörfum.
Staðan kl. 14
12 sjúklingar liggja á Landspítala vegna COVID. 10 sjúklingar liggja á bráðalegudeildum spítalans og eru 5 þeirra óbólusettir. Á gjörgæslu eru 2 sjúklingar og annar þeirra í öndunarvél. Engir sjúklingar í innlögn eru hálfbólusettir. Meðalaldur innlagðra er 57 ár.
Alls hafa 90 sjúklingar lagst inn á Landspítala með COVID í fjórðu bylgju faraldursins. Um þriðjungur er óbólusettur. Fimmtán hafa þurft gjörgæslustuðning.
Sjúklingur á sextugsaldri, með COVID-19, lést á Landspítala á síðasta sólahring. Tveir sjúklingar hafa því látist í fjórðu bylgju faraldursins.
Nú eru 838 sjúklingar, þar af 186 börn, í COVID göngudeild spítalans . Tveir sjúklingar eru metnir rauðir og 29 einstaklingar gulir og þurfa nánara eftirlit.
16 starfsmenn eru í einangrun með COVID-19, 24 í sóttkví A, 6 í sóttkví B og 77 í sóttkví C.
Sérstakar tilkynningar
1. Starfsemi á Landakoti er nú að færast í eðlilegt horf eftir að starfsmaður þar greindist með COVID-19 þann 23. ágúst s.l. Ekki varð um útbreiðslu smitsins að ræða.
2. Í gær, 26. ágúst, greindist óvænt COVID-19 smit hjá inniliggjandi sjúklingi. Öflugt viðbragð fór þegar í gang og umfangsmikil sýnataka og rakning hafin. Deildin er lokuð fyrir innlögnum þar til sóttkví verður aflétt við neikvæða sýnatöku á 7. degi frá útsetningu. Allir sjúklingar eru í sóttkví og nokkur fjöldi starfsmanna ýmist í vinnusóttkví C eða sóttkví í samfélaginu.
3. Meðfylgjandi er ný spá um þróun faraldursins
Starfsmenn eru hvattir til að vakta líðan sína daglega og fara í sýnatöku ef einkenna verður vart. Fari heimilismaður starfsmanns í sýnatöku þá skal starfsmaður vera heima í úrvinnslusóttkví þar til svar liggur fyrir.
Talnaupplýsingar um stöðuna á spítalanum eru birtar á www.landspitali.is.