Landspítali er á hættustigi, sem er annað af þremur viðbragðsstigum Landspítala. Ástæðan er faraldur COVID-19. Skilgreining hættustigs samkvæmt viðbragðsáætlun Landspítala er eftirfarandi:
Orðinn atburður sem kallar á að starfað sé eftir viðbragðsáætlunum. Fjöldi þolenda af þeirri stærðargráðu að aukið álag skapast á ýmsar deildir (gulur litur í gátlistum).
Viðbragðsáætlun Landspítala vegna farsótta hefur því verið virkjuð og funda viðbragðsstjórn og farsóttanefnd eftir þörfum.
Staðan kl. 15
14 sjúklingar liggja á Landspítala vegna COVID. 12 sjúklingar liggja á bráðalegudeildum spítalans og eru 6 þeirra óbólusettir. Á gjörgæslu eru 2 sjúklingar, hvorugur í öndunarvél.
Alls hafa 96 sjúklingar lagst inn á Landspítala með COVID í fjórðu bylgju faraldursins. Um þriðjungur er óbólusettur. Sextán hafa þurft gjörgæslustuðning.
Þrír sjúklingar hafa látist í fjórðu bylgju faraldursins.
Nú eru 848 sjúklingar, þar af 197 börn, í COVID göngudeild spítalans.
Starfsmenn eru hvattir til að vakta líðan sína daglega og fara í sýnatöku ef einkenna verður vart. Fari heimilismaður starfsmanns í sýnatöku þá skal starfsmaður vera heima í úrvinnslusóttkví þar til svar liggur fyrir.
Talnaupplýsingar um stöðuna á spítalanum eru birtar á www.landspitali.is.