Landspítali er á hættustigi, sem er annað af þremur viðbragðsstigum Landspítala. Ástæðan er faraldur COVID-19. Skilgreining hættustigs samkvæmt viðbragðsáætlun Landspítala er eftirfarandi:
Orðinn atburður sem kallar á að starfað sé eftir viðbragðsáætlunum. Fjöldi þolenda af þeirri stærðargráðu að aukið álag skapast á ýmsar deildir (gulur litur í gátlistum).
Viðbragðsáætlun Landspítala vegna farsótta hefur því verið virkjuð og funda viðbragðsstjórn og farsóttanefnd eftir þörfum.
Staðan kl. 14
10 sjúklingar liggja á Landspítala vegna COVID, allir á bráðalegudeildum spítalans og eru 3 þeirra óbólusettir. Á gjörgæslu er enginn sjúklingur. Engir sjúklingar í innlögn eru hálfbólusettir. Meðalaldur innlagðra er 66 ár.
Alls hafa 95 sjúklingar lagst inn á Landspítala með COVID í fjórðu bylgju faraldursins. Um þriðjungur er óbólusettur. Sextán hafa þurft gjörgæslustuðning.
Þrír sjúklingar með COVID-19 hafa látist í fjórðu bylgju faraldursins á Landspítala .
Nú eru 805 sjúklingar, þar af 220 börn, í COVID göngudeild spítalans. Einn er metinn rauður en 16 einstaklingur gulur og þurfa nánara eftirlit.
11 starfsmenn eru í einangrun vegna COVID-19, 17 í sóttkví A, 12 í sóttkví B og 90 í sóttkví C.
Talnaupplýsingar um stöðuna á spítalanum eru birtar á www.landspitali.is.