Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra tók 3. september 2021 fyrstu skóflustungu að nýju rannsóknarhúsi ásamt Páli Matthíassyni forstjóra Landspítala, Unni Brá Konráðsdóttur, formanni stýrihóps Landspítala og Jóni Atla Benediktssyni rektor Háskóla Íslands.
Nýtt rannsóknarhús, sem mun rísa vestan Læknagarðs HÍ, er ein af byggingum í heildaruppbyggingu Nýs Landspítala við Hringbraut og verður um 17.400 fermetrar að stærð.
Rannsóknarhúsið verður um 17.500 fermetrar og fjórar hæðir ásamt kjallara, tæknisvæði verður á fimmtu hæð og hugmyndir eru um þyrlupall. Í rannsóknarhúsi hins nýja spítala sameinast öll rannsóknarstarfsemi spítalans á einn stað.
Starfseiningar í rannsóknarhúsi verða lífsýnasafn, meinafræði, rannsóknarkjarni, klínísk lífefnafræði og blóðmeinafræði, frumuræktunarkjarni, frumumeðhöndlun, erfða- og sameindalæknisfræði, ónæmisfræði og sýkla- og veirufræði. Starfsemi Blóðbanka mun einnig flytjast í bygginguna. Í tengslum við meinafræðieiningu verður líkhús og krufning og aðstaða fyrir réttarmeinafræði. Rannsóknarhúsið tengist meðferðarkjarna og öðrum byggingum spítalans með rörpóstkerfi og göngum neðanjarðar. Með því munu deildir spítalans geta sent sýni til rannsókna í rannsóknarhús á örfáum mínútum.
Hönnunarhópurinn Corpus er aðalhönnuður hússins en að honum standa níu innlend og erlend hönnunarfyrirtæki. Aðaluppdrættir hússins liggja nú þegar fyrir og hönnun lýkur á næsta ári.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra: „Þetta eru stór tímamót og mikill áfangi að sjá draum okkar landsmanna um uppbyggingu Landspítala rætast. Framkvæmdir hér á svæðinu hafa gengið vel og færa okkur nær því markmiði að hér verði tekið í notkun nýtt þjóðarsjúkrahús árið 2026. Nýtt öflugt og tæknivætt rannsóknarhús er mikilvægur þáttur í því að geta veitt skilvirka og margbrotna þjónustu fyrir landið allt í takt við nýjustu þekkingu í heilbrigðisvísindum til framtíðar.“
Gunnar Svavarsson, framkvæmdastjóri Nýs Landspítala: „Jarðvinnan hér, sem Háfell ehf. mun sinna, kallast á við það stóra uppsteypuverk sem Eykt hf. vinnur að í Hringbrautarverkefninu vegna meðferðarkjarna, nýs þjóðarsjúkrahúss. Jarðvinnu rannsóknarhússins mun ljúka í upphafi næsta árs og þá hefst fljótlega uppsteypan. Stutt er einnig í að vinna við bílastæða- og tæknihúsið hefjist ásamt uppbyggingu bílakjallarans. Starfsmannafjöldinn hér á svæðinu nálgast 700 manns þegar mest verður en auk þess er mikill fjöldi ráðgjafa og hönnuða á arkitekta- og verkfræðistofum starfandi við uppbyggingu nýs Landspítala."
Páll Matthíasson forstjóri Landspítala: „Rannsóknarhúsið og rannsóknarstarfsemi Landspítala er og verður áfram ein af burðarásum í fjölþættri starfsemi okkar. Það er gríðarlega mikilvægt að þær dreifðu og fjölmörgu stofur sem nú eru starfandi á nokkrum stöðum á höfuðborgarsvæðinu fái sér einn nútíma samastað. Starfsemi hússins mun taka mið af því besta og margt sem við erum að kljást við í dag í þjónustu við sjúklinga mun taka stórstígum framförum. Það er því gleðiefni að við séum komin jafn langt og raun ber vitni um við uppbygginguna við Hringbraut.“