Stefnt að þvi að nýtt bílastæða- og tæknihús Landspítala verði tekið í notkun árið 2026. Þann 9. september 2021 var skrifað undir samning við Eykt ehf vegna fullnaðarhönnunar á húsinu og verkframkvæmda.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra undirritaði samninginn við Eykt ehf. ásamt Páli Matthíassyni forstjóra Landspítala, Jóni Atla Benediktssyni háskólarektor og Páli D. Sigurðssyni framkvæmdastjóra Eyktar.
Nýtt bílastæða- og tæknihús er ein af byggingum í heildaruppbyggingu Nýs Landspítala við Hringbraut. Húsið verður um 19.500 fermetrar að stærð og er í raun átta hæðir, fimm hæðir ofanjarðar og þrjár hæðir neðanjarðar. Bílastæða- og tæknihús eða BT húsið eins og það er kallað mun rúma stæði fyrir um 550 bíla. Í húsinu verður líka geymsla fyrir 100 hjól, þar af um fjórðungur fyrir rafhjól. Bíla- og hjólastæði svæðisins verða til framtíðar nægjanlega mörg miðað við framtíðarspár. Einnig er verið að byggja bílakjallara undir Sóleyjartorgi, sambærilegum bílakjallara Hörpunnar á tveimur hæðum, þar sem verða 200 bílastæði, aðallega ætluð sjúklingum og gestum. Þar verður gott aðgengi beint inn í spítalann. Úr bílastæða- og tæknihúsinu verður einnig hægt að ganga á milli húsa eftir göngum. Tæknihluti hússins, T-ið í BT, er afar mikilvægur, þar verður tæknirými fyrir varaaflsvélar Landspítala þannig að tryggt sé að rafmagn verði til staðar á öllu svæðinu ef truflanir verða á afhendingu rafmagns og það sama gildir um búnað fyrir varakyndingu ef skortur verður á heitu vatni. Þá verður í húsinu kælikerfi spítalans en loftinntök og öll loftræsing innan spítalans, sama hvaða hús það eru, skiptir verulegu máli í starfseminni. BT húsið mun eins og aðrar byggingar í Hringbrautarverkefninu hafa umhverfisvæna nálgun.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra: „Samningurinn vegna byggingar bílastæða- og tæknihúss er mikilvægur sem eitt af mörgum skrefum í þessu stóra uppbyggingarverkefni við Hringbraut. Bílastæða- og tæknihúsið mun gegna veigamiklu hlutverki í starfsemi spítalans, bæði svo hægt sé að leggja bílum og hjólum á svæðinu en einnig fyrir tæknilega starfsemi. Miklu skiptir að bygging hússins hefur umhverfisvæna nálgun.“
Páll Matthíasson forstjóri Landspítala: „Þetta er spennandi verkefni sem við hlökkum til að sjá verða að veruleika. Þarna er mikilvægt tæknirými og síðan skiptir máli að tryggja fullnægjandi fjölda bílastæða fyrir þá sem erindi eiga á spítalann. Við lögðum einnig sérstaka áherslu á að það væri gott pláss fyrir reiðhjól í húsinu enda fjölgar stöðugt því starfsfólki sem kýs að koma hjólandi í vinnuna. Það er ánægjulegt að sjá hversu vel uppbyggingunni við Hringbraut miðar og allt starfsfólk Landspítala fylgist spennt með.“
Páll D. Sigurðsson, framkvæmdastjóri Eyktar ehf.: „Með Eykt í samstarfinu eru arkitektastofan Tark og verkfræðistofan VSÓ. Við hjá Eykt þekkjum vel til Hringbrautarverkefnisins en við erum núna að steypa upp meðferðarkjarnann og er þar allt á fullri ferð. Samstarfið gengur vel við Nýjan Landspítala og við munum einhenda okkur í þetta verkefni líkt og önnur.“
Gunnar Svavarsson, framkvæmdastjóri Nýs Landspítala: „Ákveðið var að fara í alútboð en þá eru hönnun og framkvæmd boðin út í einum og sama útboðspakkanum. Heildarniðurstaðan var að byggingarfyrirtækið Eykt varð hlutskarpast. Samningurinn sem hér er skrifað undir er því mikilvægur áfangi sem eitt af mörgum skrefum okkar fram á við í Hringbrautarverkefninu.”