Landspítali er á óvissustigi, sem er fyrsta af þremur viðbragðsstigum Landspítala. Ástæðan er faraldur COVID-19. Skilgreining óvissustigs samkvæmt viðbragðsáætlun Landspítala er eftirfarandi: Viðbúnaður vegna yfirvofandi eða orðins atburðar. Ef dagleg starfsemi ræður við atburðinn, upplýsingar um atburð eru óljósar eða ekki nægar til að virkja áætlun til fulls (grænn litur í gátlistum).
Viðbragðsáætlun Landspítala vegna farsótta er virk og funda viðbragðsstjórn og farsóttanefnd eftir þörfum.
Staðan kl. 9:00
8 sjúklingar liggja á Landspítala vegna COVID-19, þar af 1 barn. Á bráðalegudeildum spítalans eru 6. Á gjörgæslu er 1 sjúklingur, ekki í öndunarvél.
Nú er 351 sjúklingur, þar af 125 börn, í COVID göngudeild spítalans. Enginn er metinn rauður en 7 eru gulir.
Tölur verða næst uppfærðar föstudaginn 1. október.
Talnaupplýsingar um stöðuna á spítalanum eru birtar á www.landspitali.is.