Landspítali er á óvissustigi, sem er fyrsta af þremur viðbragðsstigum Landspítala. Ástæðan er faraldur COVID-19. Skilgreining óvissustigs samkvæmt viðbragðsáætlun Landspítala er eftirfarandi: Viðbúnaður vegna yfirvofandi eða orðins atburðar. Ef dagleg starfsemi ræður við atburðinn, upplýsingar um atburð eru óljósar eða ekki nægar til að virkja áætlun til fulls (grænn litur í gátlistum).
Viðbragðsáætlun Landspítala vegna farsótta er virk og funda viðbragðsstjórn og farsóttanefnd eftir þörfum.
Staðan kl. 9:00
9 sjúklingar liggja á Landspítala vegna COVID-19, þar af 1 barn. Á bráðalegudeildum spítalans eru 8. Á gjörgæslu er 1 sjúklingur, í öndunarvél.
Nú er 364 sjúklingar, þar af 118 börn, í COVID göngudeild spítalans.
Frá upphafi COVID-19 hafa verið 447 innlagnir/legur smitaðra á Landspítala, þar af 117 í bylgju fjögur (frá 30. júní 2021).
Tölur verða næst uppfærðar mánudaginn 4. október.
Talnaupplýsingar um stöðuna á spítalanum eru birtar á www.landspitali.is.