Landspítali er á óvissustigi, sem er fyrsta af þremur viðbragðsstigum Landspítala. Ástæðan er faraldur COVID-19. Skilgreining óvissustigs samkvæmt viðbragðsáætlun Landspítala er eftirfarandi: Viðbúnaður vegna yfirvofandi eða orðins atburðar. Ef dagleg starfsemi ræður við atburðinn, upplýsingar um atburð eru óljósar eða ekki nægar til að virkja áætlun til fulls (grænn litur í gátlistum).
Viðbragðsáætlun Landspítala vegna farsótta er virk og funda viðbragðsstjórn og farsóttanefnd eftir þörfum.
Staðan kl. 9:00
9 sjúklingar liggja á Landspítala vegna COVID-19, þar af 1 barn. Á bráðalegudeildum spítalans eru 8. Á gjörgæslu er 1 sjúklingur, ekki í öndunarvél. Meðalaldur inniliggjandi er 51 ár.
Nú eru 368 sjúklingar, þar af 145 börn, í COVID göngudeild spítalans.
Frá upphafi fjórðu bylgju, 30. júní 2021, hafa verið 119 innlagnir vegna COVID-19 á Landspítala.
Tölur verða næst uppfærðar föstudaginn 8. október.
Talnaupplýsingar um stöðuna á spítalanum eru birtar á www.landspitali.is.