Runólfur Pálsson hefur tekið tímabundið við starfi framkvæmdastjóra meðferðarsviðs á Landspítala af Guðlaugu Rakel Guðjónsdóttur, sem gegnir tímabundið starfi forstjóra spítalans.
Runólfur lauk kandídatsprófi í læknisfræði frá Háskóla Íslands árið 1985, sérfræðinámi í lyflækningum frá Hartford Hospital og University of Connecticut árið 1991 og sérfræðinámi í nýrnalækningum frá Massachusetts General Hospital og Harvard Medical School árið 1996. Runólfur hefur starfað á Landspítala samfellt frá árinu 1996 og hefur gegnt þar ýmsum stjórnunarstöðum, síðast starfi forstöðumanns lyflækninga- og bráðaþjónustu. Hann er jafnframt prófessor við læknadeild Háskóla Íslands.