Brjóstamiðstöð Landspítala verður með opið hús föstudaginn 22. október 2021, kl. 14:30-16:30.
Tilefni opna hússins er „Bleikur október“, árvekniátak um brjóstakrabbamein.
Brjóstamiðstöð Landspítala er til húsa að Eiríksgötu 5. Á 3. hæð er skimun og greining og á 4. hæð er göngudeild.
Starfsfólkið hvetur velunnara og samstarfsfólk til að líta við, skoða deildirnar og þiggja léttar veitingar.
Brjóstamiðstöð - skimun og greining