Landspítali er á óvissustigi, sem er fyrsta af þremur viðbragðsstigum Landspítala. Ástæðan er faraldur COVID-19. Skilgreining óvissustigs samkvæmt viðbragðsáætlun Landspítala er eftirfarandi: Viðbúnaður vegna yfirvofandi eða orðins atburðar. Ef dagleg starfsemi ræður við atburðinn, upplýsingar um atburð eru óljósar eða ekki nægar til að virkja áætlun til fulls (grænn litur í gátlistum).
Viðbragðsáætlun Landspítala vegna farsótta er virk og funda viðbragðsstjórn og farsóttanefnd eftir þörfum.
Staðan kl. 9:00
7 sjúklingar liggja á Landspítala vegna COVID-19, allir fullorðnir. Einn er á gjörgæslu, ekki í öndunarvél. Meðalaldur inniliggjandi er 42 ár.
758 sjúklingar, þar af 203 börn, í COVID göngudeild spítalans. Nýskráðir þar í gær voru 65 fullorðnir og 17 börn.
Frá upphafi fjórðu bylgju, 30. júní 2021, hafa verið 134 innlagnir vegna COVID-19 á Landspítala.
Tölur verða næst uppfærðar miðvikudaginn 27. október.
Talnaupplýsingar um stöðuna á spítalanum eru birtar á www.landspitali.is.