Frá Landspítala 25. október 2021, kl. 21:20:
Á hjarta-, lungna- og augnskurðdeild 12G á Landspítala hefur nú greinst COVID-19 smit hjá fjórum sjúklingum. Rakning og skimun stendur yfir meðal sjúklinga, aðstandenda og starfsmanna en ekki er vitað á þessari stundu hvernig smitið barst inn á deildina. Deildin er lokuð fyrir innlögnum og heimsóknum.
Á Landspítala eru enn í gildi reglur um grímuskyldu og fjarlægðartakmörk ásamt persónulegum sóttvörnum. Ættingjar eru beðnir um að koma ekki á spítalann sýni þeir einkenni COVID-19 og grímuskylda gildir um þá.
Mörg smit greinast nú í samfélaginu og um nýliðna helgi varð 21 tilvik þar sem fólk með tengsl við Landspítala greindist með sjúkdóminn og krafðist það rakningar og eftir atvikum einangrunar eða sóttkvíar.