Forstjóri og farsóttanefnd Landspítala funduðu í hádeginu í dag, 26. október 2021, vegna COVID-19 hópsmits sem upp er komið á deild hjarta-, lungna og augnskurðdeild 12G.
Ákveðið var að gera smitsjúkdómadeild A7 að farsóttareiningu og mun hún því helga sig umönnun COVID-19 sjúklinga.
Þessi ákvörðun kallar á umfangsmikla flutninga annarra sjúklinga en gert er ráð fyrir að þeim ljúki í kvöld.
Deild 12G verður í sóttkví næstu daga og lokað fyrir innlagnir þar. Búast má við frestunum fyrirhugaðra skurðaðgerða vegna þessa en eftir sem áður er öllum bráðaaðgerðum sinnt.
Landspítali er á óvissustigi en það er til stöðugrar endurskoðunar eftir því sem áhrifum faraldursins á spítalann vindur fram.