Landspítali er á óvissustigi, sem er fyrsta af þremur viðbragðsstigum Landspítala. Ástæðan er faraldur COVID-19. Skilgreining óvissustigs samkvæmt viðbragðsáætlun Landspítala er eftirfarandi: Viðbúnaður vegna yfirvofandi eða orðins atburðar. Ef dagleg starfsemi ræður við atburðinn, upplýsingar um atburð eru óljósar eða ekki nægar til að virkja áætlun til fulls (grænn litur í gátlistum).
Viðbragðsáætlun Landspítala vegna farsótta er virk og funda viðbragðsstjórn og farsóttanefnd eftir þörfum.
Staðan kl. 9:00
13 sjúklingar liggja á Landspítala vegna COVID-19, allir fullorðnir. Fimm eru óbólusettir. Fjórir eru á gjörgæslu, þar af einn í öndunarvél. Meðalaldur inniliggjandi er 56 ár.
874 sjúklingar, þar af 211 börn, í COVID göngudeild spítalans. Nýskráðir þar í gær voru 56 fullorðnir og 21 börn.
Frá upphafi fjórðu bylgju, 30. júní 2021, hafa verið 147 innlagnir vegna COVID-19 á Landspítala.
Tölur verða næst uppfærðar mánudaginn 1. nóvember.
Talnaupplýsingar um stöðuna á spítalanum eru birtar á www.landspitali.is.