Landspítali er á óvissustigi, sem er fyrsta af þremur viðbragðsstigum Landspítala. Ástæðan er faraldur COVID-19. Skilgreining óvissustigs samkvæmt viðbragðsáætlun Landspítala er eftirfarandi: Viðbúnaður vegna yfirvofandi eða orðins atburðar. Ef dagleg starfsemi ræður við atburðinn, upplýsingar um atburð eru óljósar eða ekki nægar til að virkja áætlun til fulls (grænn litur í gátlistum).
Viðbragðsáætlun Landspítala vegna farsótta er virk og funda viðbragðsstjórn og farsóttanefnd eftir þörfum.
Staðan kl. 9:00
16 sjúklingar liggja á Landspítala vegna COVID-19, þar af eitt ungbarn. Átta eru óbólusettir. Fjórir eru á gjörgæslu, þrír þeirra í öndunarvél (þar af einn einnig í ECMO hjarta- og lungnavél). Meðalaldur inniliggjandi er 50 ár.
937 sjúklingar, þar af 224 börn, í COVID göngudeild spítalans. Nýskráðir þar í gær voru 72 fullorðnir og 21 barn.
Frá upphafi fjórðu bylgju, 30. júní 2021, hefur verið 157 innlögn vegna COVID-19 á Landspítala.
Tölur verða næst uppfærðar föstudaginn 5. nóvember.
Talnaupplýsingar um stöðuna á spítalanum eru birtar á www.landspitali.is.