Frá farsóttnefnd Landspítala 6. nóvember 2021:
Landspítali er á hættustigi.
Samkvæmt skilgreiningu er hættustig þegar orðinn atburður kallar á að starfað sé eftir viðbragðsáætlun. Aukið og breytt álag er á fjölmargar starfseiningar. Þetta getur falið í sér bæði breytta starfsemi og tilflutning á verkefnum og starfsfólki.
Í dag liggja 17 einstaklingar með COVID á Landspítala. Þrír eru á gjörgæslu, tveir þeirra í öndunarvél og annar í hjarta- og lungnavél. Á smitsjúkdómadeild eru 14 sjúklingar. Lungnadeild A6 er í viðbragðsstöðu að taka við þegar smitsjúkdómadeild er komin með 16 sjúklinga.
Á COVID göngudeild eru nú tæplega 1.200 manns í símaeftirliti. Um 30 eru undir sérstöku eftirliti og munu einhverjir þeirra koma til skoðunar og meðferðar í dag.
Nú eru 16 starfsmenn Landspítala í einangrun vegna COVID og um 100 eru í vinnusóttkví.
Heimsóknarbann tók gildi á miðnætti. Allar deildir eru læstar og aðgangsstýrðar. Forsvarsmenn deilda gefa undanþágur frá heimsóknarbanni þegar nauðsyn krefur.
Starfsfólk er hvatt til að skrá sig í bakvarðasveit - sjá tilkynningu í gær.