Landspítali er á hættustigi
Í dag liggja 15 sjúklingar með COVID á Landspítala. Þrír eru á gjörgæslu og allir í öndunarvél. Einn er á bráðageðdeild og 11 á smitsjúkdómadeild. Tvær innlagnir voru í gær.
Nú eru 1.359 einstaklingar í eftirliti göngudeildar, þar af eru 324 börn en þau hafa aldrei verið fleiri. Gríðarlegur fjöldi smita greindist í gær og verkefnin vaxa í samræmi við það.
Farsóttanefnd og viðbragðsstjórn hafa þungar áhyggjur af útbreiðslu smita víða um land og þeim verkefnum sem í kjölfarið fylgja.
Ágæt viðbrögð hafa verið við ákalli um liðsinni við úthringingar en betur má ef duga skal. Meðal annars hefur hópur hjúkrunarfræðinga á Akureyri bæst í úthringihópinn og er það vinnuframlag ómetanlegt.
Nú liggur mest á að styrkja mönnun á gjörgæsludeildum og er sérstakt ákall í dag til þeirra sem búa yfir slíkri hæfni að skrá sig á bakvarðalista.
Í gær var greint frá smiti á geðdeild. Rakningu er lokið. Ekki hafa greinst fleiri smit en nokkuð stór sýnataka verður í dag og er niðurstöðu að vænta síðdegis og í kvöld. Þrettán starfsmenn eru í sóttkví A og 26 í vinnusóttkví vegna smitsins.
Árvekni - einkennavöktun - grímur - handhreinsun