Landspítali er á hættustigi.
Í dag liggja 19 sjúklingar með COVID-19 á Landspítala. Þrír eru á gjörgæslu, enginn í öndunarvél. 14 eru á smitsjúkdómadeild og tveir á geðdeild. Fjórar innlagnir voru í gær. Nú eru 1.626 einstaklingar í eftirliti göngudeildar þar af 396 börn. 65 eru á gulu, enginn rauður. Í gær komu 13 einstaklingar til skoðunar og meðferðar á COVID göngudeild.
26 starfsmenn eru í einangrun vegna COVID, 33 eru í sóttkví og 246 í vinnusóttkví.
Ekki hafa greinst fleiri smit hjá sjúklingum eða starfsmönnum á heila-, tauga og bæklunarskurðdeild og var deildin opnuð í gærkvöldi.
Áfram er ein geðdeild lokuð vegna smita en ekki hafa greinst fleiri í skimunum undanfarinna daga. Smit komu upp í Skaftahlíð og í lyfjaþjónustu og er rakningu þar lokið.