Landspítali er á hættustigi
Nú liggja 18 sjúklingar með COVID á Landspítala. Þar af eru fjórir á gjörgæslu og tveir þeirra í öndunarvél.
Í eftirliti eru 1.783 og þarf af 511 börn. 92 eru á gulu enginn á rauðu. Í gær komu tíu sjúklingar til rannsókna og meðferðar í göngudeild en enginn þeirra þurfti innlögn að sinni.
23 starfsmenn eru í einangrun, 19 í sóttkví og 191 í vinnusóttkví.