Landspítali er á hættustigi
Í dag liggja 20 sjúklingar með COVID á Landspítala. Fjórir eru á gjörgæslu, allir á öndunarvél. Fjórtán eru á smitsjúkdómadeild og tveir á geðdeild.
Í eftirliti á göngudeild eru nú 1.789 einstaklingar og af þeim eru 520 börn. Í gær komu 14 sjúklingar til mats og meðferðar á göngudeildina og af þeim þurftu fjórir að leggjast inn.
23 starfsmenn eru í einangrun, 23 í sóttkví og 237 í vinnusóttkví.
- Nú er lokið skimunum á geðdeildum vegna smita sem komu þar upp í fyrri viku og greindust alls þrír sjúklingar,(einn útskrifaður sem var í sóttkví) og fimm starfsmenn.
Þá er lokið skimunum á heila-, tauga og bæklunarskurðdeild vegna smits sem greindist hjá inniliggjandi sjúklingi. Engin dreifing varð.
Skimanir á bæklunarskurðdeild og í Skaftahlíð hafa ennfremur ekki leitt í ljós dreifingu.